Handbolti - Eitt stig á móti Akureyri, næsti leikur á föstudag

10.des.2015  09:28

Strákarnir náðu í eitt stig eftir jafntefli á móti Akureyri. Það var svekkjandi að hafa ekki stolið báðum stigunum þar sem við áttum síðustu sóknina. Hins vegar getum við verið sátt við stigið miðað við hvernig firstu 40 mínúturnar spiluðust. En það var frábært að sjá hvernig liðið kom til baka og baráttan í lokin var rosaleg, langar okkur að þakka áhorfendum sem studdu vel við liðið í lokin.
En það er stutt í næsta verkefni, strax á föstudaginn kl. 18.30 fáum við Víking í heimsókn. Við viljum að sjálfsöðu fá sem flesta á völlinn til að styðja strákana.
Áfram ÍBV. Alltaf alstaðar.